Landsmót hestamanna verður haldið vikuna 27. júní til 4. júlí að Vindheimamelum í Skagafirði. Landsmótið hefur verið haldið í 60 ár og er þetta það 19. í röðinni. Landsmót hafa verið haldin áður fimm sinnum á keppnissvæðinu á Vindheimamelum.Frá upphafi eða frá því að Landsmót var fyrst haldið á Þingvöllum, hefur mótið verið einn stærsti íþróttaviðburður landsins. Grapewire hefur hannað og byggt sérsniðið að þörfum Landssambands hestamanna nýtt sveigjanlegt miðasölukerfi sem framvegis er notað til sölu miða, varnings, hjólhýsastæða og stúkusæta.
Landsmót hestamanna verður haldið vikuna 27. júní til 4. júlí að Vindheimamelum í Skagafirði. Landsmótið hefur verið haldið í 60 ár og er þetta það 19. í röðinni. Landsmót hafa verið haldin áður fimm sinnum á keppnissvæðinu á Vindheimamelum.
Frá upphafi eða frá því að Landsmót var fyrst haldið á Þingvöllum, hefur mótið verið einn stærsti íþróttaviðburður landsins. Grapewire hefur hannað og byggt sérsniðið að þörfum Landssambands hestamanna nýtt sveigjanlegt miðasölukerfi sem framvegis er notað til sölu miða, varnings, hjólhýsastæða og stúkusæta.
